Ferill ökunáms til A-réttinda (bifhjólapróf)
Flokkar bifhjólaréttinda og aldurstakmörk
AM réttindi
Aldurstakmark 15 ára. Taka þarf námskeiðið Ökuskóli 1 og að lágmarki 8 tíma hjá ökukennara, auk bók- og verklegs
prófs hjá Frumherja. AM réttindi veita rétt til að aka léttu bifhjóli sem er með vélarstærð ekki yfir 50cc og
hjólið má ekki komast hraðar en 45 km/klst.
A1 réttindi
Aldurstakmark 17 ára. Þeir sem hafa bílpróf fyrir þurfa ekki að taka bóklegt námskeið og nægir eingöngu að taka að
lágmarki 5 verklega ökutíma, auk bók- og verklegs prófs hjá Frumherja. A1 réttindi veita rétt til þess að aka bifhjóli
með vélarstærð sem er ekki meira en 125 cc.
A2 réttindi
Aldurstakmark 19 ár. Taka þarf 12 stunda bóklegt námskeið og að lágmarki 11 tíma hjá ökukennara, auk bók- og
verklegs prófs hjá Frumherja. A2 réttindi leyfa akstur á bifhjóli sem er ekki meira en 35 kw – 47 hestöfl.
Þeir ökumenn sem hafa tveggja ára reynslu af akstri bifhjóla í flokki A2, þurfa eingöngu að standast verklegt
próf til þess að fá A réttindi.
A réttindi
Aldurstakmarkið er 24 ár, með þeirri undantekningu að þeir ökumenn sem hafa A2 réttindi þurfa eingöngu að standast
verklegt próf til að fá A réttindi eftir tvö ár með A2. Þeir ökumenn sem eru að taka A réttindi sem fyrstu
bifhjólaréttindi þurfa að bóklegt námskeið og 11 verklega tíma að lágmarki. Standast þarf bók- og verklegt próf hjá
Frumherja.